Bjarnarhýðið

Bjarnarblogg

A bear by name, not by nature

Víkingur 100 ára

maandag, maart 28, 2005

Dægilegt nokk

Var með það á hreinu fyrirfram að þótt það væri svo sem ýmislegt sem ég gæti gert um páskana væri alveg eins líklegt að ekkert yrði úr verki og er þar af leiðandi ekki með hinn minnsta móral yfir því að mér hefur einmitt ekkert orðið að verki þessa fimm daga sem heitið getur. Smiðurinn kom á laugardag og dyttaði að hinu og þessu smálegu og á ekki nema eitt smáverk eftir og þá er húsið full 'smíðað'. Þá er bara að vona að farið verði í lagnamál á árinu. Það er að hluta úr mínum höndum.
Fór í tvær matarveislur í gær. Stóð á blístri í dagslok. Í dag horfði ég loksins á DVD af þáttum gerðum eftir uppáhaldsbókinni minni, Crow Road. Þeir voru sýndir hér '96 eða 7. Missti af öllum nema lokaþættinum þá.
Sem sagt, mjög svo indæl páskahelgi.
Næsta helgi verður öllu aðgerðameiri. Hvort til gagns verður er hins vegar stór spurning.

zaterdag, maart 26, 2005

Nú já, þessi doktor.

Þetta var bara prýðisskemmtun og ef ég hef ekki annað að sýsla á laugardögum held ég áfram að horfa.

Hvaða doktor???

Eftir klukkutíma er komið að atburðinum sem Bretland hefur beðið eftir. Nýja Doctor Who serían er að byrja. Allir Bretar yngri en fimmtugir og eldri en 15 ólust upp við þessa seríu sem fyrstu SF sjónvarpsþættina sína, þeir gengu frá 1966 til 1991, með bíómyndarlöngum þætti '96. Það sem ég hef séð af gömlu þáttum finnst mér nú svolítið að vinir mínir líti á þetta í rósrauðum bjarma fortíðar, en ég ætla ekki að missa af þessu. Ef ekki annað þá er Christopher Ecclestone fantagóður leikari og United maður.
Í millitíðinni ætla ég að horfa á Ísland tapa fyrir Króatíu.

Morgunstund gefur gull í mund

Þetta verður góður dagur.

donderdag, maart 24, 2005

Fermingar

Mér hefur verið boðið í fermingarveislu sunnudaginn 3. apríl. Kl. 12:30. Sem er í sjálfu sér ekkert erfitt, sef aldrei svo mikið út eða neitt þannig.
En samt. Árshátiðin er laugardaginn 2. apríl. Ái.
Ég á ekki von á að vera lífið og sálin í fermingarveislunni.

dinsdag, maart 22, 2005

Það var svo sem auðvitað.

Var að ljúka við að senda leiðréttingu við framtalið. Böh. heimskuleg villa, og hefði átt að vera í villutékki hjá skattinum, enda um tölu að ræða sem þurfti að setja á tvo staði en datt bara inn á einum. Ojæja...
Tapaði veðmáli í dag, fékk góðan stuðul á að seðló myndi hækka um 100 punkta (þótti það ólíklegt, en eins og ég segi, hinum þótti það enn ólíklegra). Það var í góðu. Some you win, some you lose.
Þótti viðtalið við Pétur Pétursson í gær með nokkrum ólíkindum. En hann er án efa besti striker sem við höfum átt.

maandag, maart 21, 2005

Afköst

Flottur dagur. Borgaði múrara, fékk trésmiðinn í heimsókn, skoðaði bíla, skuldbatt mig í 12 mánuði í gymminu (ekki farið í 3 mánuði) og skilaði skattframtali.
Go. Me.

zaterdag, maart 19, 2005

Hættur störfum hjá Kaupþingi Búnaðarbanka hf.

Já, eftir atburði gærdagsins er ég aftur farinn að vinna hjá Kaupþingi banka hf. En samt áfram hjá KB banka.
Það var sumsé aðalfundur í gær sem var vel sóttur og eftir fundinn hópuðust starfsmenn af öllum þjóðernum á hin ýmsu veitingahús bæjarins. Þar sem ég var ekki í neinum vinnuhópanna í gær endaði ég í góðra kvenna hópi á Tapasbarnum og fékk gott að borða. Kvöldið hélt svo áfram á apótekinu og Thorvaldsen áður en ég hætti leik þá hæst hann stóð og keyrði heim á leið. Ég var nefnilega óhemju stabíll og afþakkaði áfengi í gær. Held ég geri það samt ekki á árshátíðinni eftir tvær vikur! Í alla staði mjög gott kvöld.
Ætla að endurtaka hér athugasemd sem ég plantaði við blogg hjá Særúnu Maríu enda hnyttið og rétt í umræðunni um Hefnd Siþþanna:
Sko... þegar george lucas segir þetta eiga að verða eins og Titanic, þá fór ég nú að hugsa hvort ég ætti nú ekki bara að fara á myndina þrátt fyrir hrollinn af epísódum 1 og 2..
Enda fór ég á Titanic gagngert til að sjá einhvert mesta stórvirki 20. aldar sökkva endanlega í sæ.

Er búinn að lesa tvær nýjar bækur frá KaupiAlltaf höfundum. Nýjasta Kathy Reichs er bara lala og ég finn vægan fnyk af Cornwall syndrómi. Plottið ekki áhugavert, og einkamálaplottið efnislítið og dregið á langinn í gegnum bókina. Það er oft sem höfundar þurfa að gera ráð fyrir að persónurnar þeirra tali ekki saman eins og flest fólk. Nýjasta Ian Rankin var líka ekki frábær, Fleshmarket Close. Of þunnt plott. Það fyndnasta er reyndar að í Bandaríkjunum heitir hún Fleshmarket Alley. Tvær þjóðir aðskildar af einu tungumáli.
Best að klára skattframtalið hennar mömmu núna. Á bara eftir að setja inn eina tölu. Svo er mitt á morgun. En ætli ég sæki ekki um frest samt :-D
Svo er þriggja daga vinnuvika. Vúhú!

zaterdag, maart 12, 2005

Dave Allen

Fyndnasti maður í heimi er dáinn. Held að bestu eftirmælin séu þessi í Guardian. Sýnist að spólan sem ég keypti með honum hafi týnst í útláni, enda vinsæl til láns. Þarf að kaupa mér DVD. Kirkjugarðskapphlaupið er fyndasta sketsj sem ég hef nokkru sinni séð.
Thank you, goodnight, and may your God go with you.

woensdag, maart 09, 2005

Spyware óbjóður

Var að koma frá frænda, tvær vélar fullar af spyware. oj. Bjargaði reyndar kvöldinu að það var ekki CoolWebSearch þannig að adaware og spybot sáu um þetta að mestu.
Og ég sem hélt að þetta yrði einföld netendurtenging.
Nú er þeim bannað að nota annað en Firefox.

dinsdag, maart 08, 2005

Sótsvart

Nú er það svart, sótsvart. Þetta var ÖMURLEGT KVÖLD. Hefði þá aðeins verið verra ef ég héldi með Bremen líka.

maandag, maart 07, 2005

Tosca

Tosca var voða fín, allir sungu geysivel, en verð að viðurkenna að mér fannst Ólafur Kjartan og Jóhann Friðgeir ekki alveg nógu kraftmiklir, sér í lagi ekki þegar þeir voru að syngja á móti Elínu Ósk. En það er ekki einsog ég hafi vit á þessu.

zondag, maart 06, 2005

Million Dollar Baby

Eins og Matti segir er erfitt að fjalla um MDB án þess að spilla fyrir söguþræðinum. Ég leysi þetta með því að setja í comment hvað er aðalmálið með myndina. Sjá þar sumsé.

Formúlan er byrjuð!

Þá fer sumarið að koma, kannske.
Verður gaman að sjá Michael koma upp úr 14. sæti og vinna þetta.