Bjarnarhýðið

Bjarnarblogg

A bear by name, not by nature

Víkingur 100 ára

zaterdag, september 24, 2005

Úffffff

Þetta var soltið mikið í gær... Ég held að nú sé kvótinn kominn í bili. Næstu vikurnar í það minnsta.
En þetta var bara þrælskemmtilegt. Núna þarf ég að fara í göngutúr og hrista köngulóarvefina úr kollinum. Er ekki frá því að ástandið kalli á örlítið frávik frá heilsuátakinu.
Fimmtugsafmæli seinnipartinn, og ég er ekki frá því að það væri gaman að líta á Alþingishúsið. Ef heilsan leyfir. Úgg... Og það er ekki eins og maður fái að horfa á United leik á bikarúrslitatíma.

donderdag, september 22, 2005

Menning og menn

Það er aðall í Bandaríkjunum. Og sumir eru flottari en aðrir. Gore Vidal. Með merkilegri viðtölum sem ég hef lesið.
Og með tónhöllina, 12jarðar eða ekki, ég fæ ekki betur séð en opinbert framlag í húsið sé 600 millur á ári. Reyndar í einhver 30 ár. Eða er ég að misskilja?
Ég held að ég geti best skilið pirring tónlistarmafíunnar út í ráðstefnupakkið með því að yfirfæra það yfir á Laugardalsvöll, fótbolti vs frjálsar. Munurinn er sá að það munu einhverjir mæta á ráðstefnurnar!
Var í jarðarför móðurbróður míns í dag. Rafvirki sem vann vel á níræðisaldur og hætti ekki alveg fyrr en elliglöpin gripu hann. Alltaf mikill töggur í karli. Einhver mesti hlutasafnari sem ég veit um, það tók 3 mánuði að tæma íbúðina hans eftir að hann flutti á elliheimili, en ekki dettur mér í hug að kalla það drasl. Ég á sjálfur of mikið af fótboltablöðum til þess (2000+ talsins). Veit að ákveðið safn tengt atvinnu hans hafi notið að hluta góðs af söfnunaráráttunni.
Í erfisdrykkjunni skaut annar frændi minn fram góðri hugmynd, hvers vegna ekki hafa kasínó á efstu hæðinni í tónhöllinni? Það sem Mónakó getur...
Og talandi um það, er ég farinn út...

Tónlistarhús

Þetta verður glæsilegt tónlistarhús! Svona hús á ekki að vera neinn kofi!
Hef reyndar smá áhyggjur af öllum þessum stigum, hvort það verði kalt þarna inni (allir þessir glerveggir) og hvort Reykjatorginu verður haldið nógu vel við.
En skíttmeðða, þetta verður bara snilld. Og Hildigunnur fær 200manna salinn sinn.

woensdag, september 21, 2005

Doncaster Rovers

Held þetta kalli jafnvel á stofnun stuðningsmannaklúbbs.
Það verður haldið upp á þrjátíu ára afmælið með stæl í vor. Leiðinlegt að borðinn sem telur árin sé farinn af OT. Sé mest eftir honum og 20LEGEND. En skil þá sem tóku þá niður.

Pólitík

Datt í hug að setja þetta hér inn. Ammrísk pólitík er skrýtin...
You are a

Social Liberal
(60% permissive)

and an...

Economic Liberal
(18% permissive)

You are best described as a:

Democrat




Link: The Politics Test on Ok Cupid

dinsdag, september 20, 2005

Skóarinn

Fór með fimm pör af skóm til skóara í dag. Ætti ekki að þurfa að kaupa mér nýja skó fyrir veturinn.
SpHakkettí og hvítlauksbrauð er hreinasta dóp. Viðurstyggilega gott á bragðið. Náði samt að hafa helminginn græmmeti. Grænmeti og fiskur í hádeginu á morgun. Ekki það ég haldi að fiskurinn verði æðislega góður. Hef ekki eldað mat í fjórar vikur ef undan eru skilin matarboðin tvö. Skyr er það heillin.
Er með níu bækur í lestrarbunkanum, mislangt komnar. Gengur hægt með Strange og Norrell, þúsund blaðsíðna doðrant. Blóðlangar í að panta af amazon listanum mínum. Eitthvað auðlæsilegra.
Ítalska á morgun. Ég held ég sé búinn að gleyma öllu. Kannske ætti ég að glugga í A me, le guardie

maandag, september 19, 2005

Klukkaður

Hildigunnur klukkaði mig. Þannig að hér eru fimm atriði um sjálfan mig.
1. Ég hef ekki farið á United leik í sex ár.
2. Christy Turlington er held ég fallegasta kona ever.
3. Ég vona að það séu engar furðulegar ástæður að baki því að fallegt dökkt hár er það fyrsta sem ég tek eftir í fari kvenna og er oft lykill að sleggjudómi um útlit.
4. Ég hef einu sinni leikið opinberan knattspyrnuleik, og var ólöglegur í leiknum, laug til um aldur. Það var ekki með Víkingi.
5. Langafi minn var fæddur 1795.

zondag, september 18, 2005

Framhald af framhaldi...

-- ég var greinilega of duglegur að skrifa í morgun --
Ein spurning: Ef þú ert í kaloríuaðhaldi og valið stendur milli minnstu flaskna af KristalPlús og kóki, hvort velurðu? Svar: Hvorug. KP inniheldur helming kaloría sem eru í kóki og þar sem valið er milli hálfslíters af hinu fyrrnefnda og 25cl af hinu, þá er þetta jafnslæmt. Haltu þig við vatnið, Kristal (mínus?) eða Topp.
Svo verð ég auðvitað að minnast á fávitana sem halda að þeir geti bannað mér að benda á sig. Er ekki réttara fyrir þá að reyna að afla goodwill frekar en að vera eins og nöldrandi idjótar. Bæðevei "Að stuðla að samræmingu útgáfumála á myndefni til hagsmuna fyrir neytendur." þýðir væntanlega að passa að við fáum ekki að sjá neitt fyrr en þeim sýnist, td. með Regional Settings á diskum. æjæja.
Það er hressandi og gott að fá sér skyrdrykk, tómata og gulrætur í morgunverð. Ég er dottinn úr toppsætinu í keppninni í vinnunni eftir Englandsferðina. Það tekur á að sitja heilan dag á krikketleik og þamba... fljótandi brauð. En það eru sex vikur eftir og það er nóg úthald hér.
Og eftir þessa maraþonfærslu geta þeir sem ásaka mig um aumingjablogg farið að hafa sig hæg. Sér í lagi þau sem ekki blogga sjálf!
e.s. Vesen sem þetta hefur verið á blogger... en leikurinn var allt í lagi, United var betra en ég sætti mig alveg við núllnúll á Annfailed.
ee.s. Bloggerdrasl... Fór austur með mömmu í tilefni dagsins, pabbi hefði orðið 96. Settum niður haustlauka og heimsóttum gamla vini.

Framhald af síðustu færslu...

Í gær féll svo Fram. Allir að segja aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa...
.
.
.
hahahaha.
Þegar Víkingur var síðast uppi var Valur í 1. deild. Núna verður það Fram (og Þróttur). Mér líður ekkert illa yfir því. En núna er bara spurningin um að tryggja úrvalsdeildarsæti og vera ekki að jójóa.
Ég held ég hafi tekið að mér að skrifa um Víkingskvennaleiki fyrir nýju DHL deildar vefsíðuna. Ætla ekki einusinni að linka á hana enda hún hörmulega illa hönnuð og upplýsinga óvæn. Það er enn fullt af dolor ipset texta sem og 'úrslit' í leikjum í deildinni þó hún sé ekki byrjuð. Idioter. Nema hvað. Víkingsskekkt útgáfa af því sem ég skrifa verður á vikingur.info.
Keypti nátt'lega búnka af bókum úti. Er of latur að lesa en hef þó náð að klára Farseer þrennuna eftir Robin Hobb og er að byrja á Jonathan Strange & Mr Norrell. Þó að ég hafi keypt System of the World. Úff. Þyrfti að fara í netbindindi til að klára eitthvað af þessu ólesna. Kannske spurning um að skreppa í Tunguhlíð í Reykholtsdal um næstu helgi. Og þó.
Ég hef sjaldan fengið eins heiftarlega græjufíkn eins og þegar ég sá iPod Nano. Þvílík græa! jedúdamía. Kaupi örugglega eina svoleiðis einhvern tímann. PSP er líka þrusuflott en ég bara spila ekki nóg af leikjum. Held að næstu græjuskref verði nettenging hússins og miðlarasmíði.
-- hm. jú, það þarf eina til --

Krikket, fótbolti, ferðalög og margt fleira

Ferðin til Englands fór eins og við var búist. Eþíópíski maturinn var ekki alveg eins góður og ég vonaði, en kaffið sló öll met. Brennt á staðnum og alles. Þvílík upplifun. Daginn eftir fékk ég svo að sjá England vinna Ashes. Meiri háttar gaman, en auðvitað sá maður oft lítið, þess vegna var sér í lagi gaman að sjá besta snúningsverpil allra tíma kasta, það kom fyrir að maður grillti í kúluna á leiðinni úr hendinni á honum og þangað til kylfill sló! Stemmingin jókst eftir því sem á daginn leið og hægt og rólega var ljóst að Kevin Pietersen var að tryggja jafnteflið. Er samt ekki á því að ég geri margar fleiri ferðir sérstaklega til að fara á krikket :) Myndir af leiknum eru hér, set þetta vonandi upp með thumbnails og solis í dag.
Svo fór ég á Kínastað sem ég þekki, fékk vondan krabba, en góða stökka önd. (Harbour City á Gerrard Street). Þriðjudagslönsj var á Chowki. Maturinn var fínn eins og áður, en þjónustan slæm. T.d. volg kók ("Til þess erum við með ís í glasinu, sör"). Held að aumingjabloggarinn Þórmundur hefði orðið nokkuð foj!
Föstudagurinn var snilld. Víkingar tryggðu sætið í úrvalsdeild að ári í einhverju leiðinlegasta veðri sem hægt er að spila fótbolta í. Á eftir var fagnað mikið og vel en ég skaust á braut tiltöluglega snemma í vinnupartí og síðan á Sálarball. Er rétt núna á sunnudeg að ná mér... í eyrum. Var með syngjandi suð og þrýsting í eyrum í allan gærdag. Þvílíkur hávaði. Ég heyrði ekki bofs þegar ég var að reyna halda uppi samræðum á ballinu, þannig að ég virkaði örugglega illa stemmdur. En þetta var bara ágætt.

-- færslan er víst orðin of löng, framhald í næstu --

zaterdag, september 10, 2005

Spennan óbærileg!

Haukar-Víkingur og Siddý-United kl 2, regnið er í liði með Englendingum og það er allt að tjúllast. Ég aðallega.
Dinnerinn á fimmtudag tókst geysivel og fólki kom eldamennskuhæfileikar mínir skemmtilega á óvart. Tiramísûuppskriftin kemur fljótlega.
Svo fer ég í loftið í fyrramálið, eyði eftirmiddeginum á krá nálægt Euston, kvöldinu á eþíópískum stað (hver þarf hnífapör?) og mánudeginum á The Oval. Þriðjudagurinn verður eitthvað settur í búðaráp, kemur mér ekki á óvart ef ég borða hádegisverð við Gerrardstræti. Svona eiga helgar að vera!

donderdag, september 08, 2005

Göngum yfir brúna

Þau ætluðu að ganga yfir brúna milli dauða og lífs, en það var skotið á þau. Svo er hér umræða um greinina á Making Light. Fréttirnar frá NOLA alltaf fallegri og fallegri.

maandag, september 05, 2005

Breytingar á bloggum

Eins gott að ritskoða tenglana. Varla var búið að loka nornahorninu þartil þar var opnuð ný sjoppa og sú er ekki beinlínis af fjölskylduvænlega taginu...
Og svo er rétt að tengja á skilgreiningu á félagshyggju.
Reyndar er svo að Patrick Nielsen-Hayden tengir á þetta komment á forsíðu Making Light sem skilgreiningu á 'líberalisma' sem sýnir mismunandi notkun þess orðs sitthvoru megin hafs. Svo er rétt að benda á að vöntun á sérhljóðum er stöðluð meðferð umræðustjóra á togurum (þeim sem nota troll).

zondag, september 04, 2005

The Oval bíður

Fyrir viku var ég í fimm manna deild, nú erum við þrír og hálfur, ef tekið er mið af nýrri aukaábyrgð yfirmannsins. Einn skrapp í frí, þannig að það var alveg nóg að gera, en ég hafði gaman að komast í verkefni sem ég hef ekki þurft að sinna í lengri tíma.
Er búinn að bóka ferð til Englands, á miða á síðasta daginn í Testinu um næstu helgi, svo er bara að vona að leikurinn endist það lengi. Ef það verður leikið og Ástralía er ekki örugg með sigur, þeas ef England á enn séns á að vinna Ashes í fyrsta skipti í 19 ár má bóka nokkuð eftirminnanlegan dag.
Varðandi tapið gegn Króötum í gær er fátt annað að segja en að menn sem geta ekki skipulagt vörn eiga ekki að þjálfa íslenska landsliðið. Ég held það verði ekki langt að bíða að Sölvi 'íslenski Nesta' Geir Ottesen komi sterkur inn. Líka gaman að sjá að Kale var besti maðurinn í U21 leiknum á föstudag.
Um New Orleans er ekki hægt að hugsa ógrátandi. Vanhæfnin og stjórnunarklúður á aðgerðum þar er svo fullkomlega geðsýkisleg. Og ég hef ekki getað komist á neina aðra skoðun en að ástæðan sé sú að um fátæka svarta suðurríkjabúa er að ræða. Þeir skipta ekki máli.
Ég vil benda á andartakið þegar Fox varð mannlegt (Matti hýsir myndbandið tímabundið innanlands), sér í lagi hvers vegna það skiptir máli að Geraldo líkir ástandinu við Willowbrook. Það er alltaf hægt að treysta á Making Light að hýsa góðar umræður, öll síðasta vika í raun, t.d. hér og hér og svo er það spurningin hvað er að vera fátækur í Bandaríkjunum.