Bjarnarhýðið

Bjarnarblogg

A bear by name, not by nature

Víkingur 100 ára

maandag, juli 31, 2006

Ágústgáta bloggara dauðans

Allir hétu þeir Magnús.

donderdag, juli 27, 2006

Arg.

Arg!
Ömurlegur leikur gegn Blikum og tap.
Arg!
Ruud farinn til Real fyrir skidogingenting.
Arg!
Lítur ekki út fyrir að við kaupum einn einasta leikmann, og þó búnir að fá 22m punda inn í sölum í sumar. Helvítis Glazer fífl. 17 millur fyrir Carrick er geðveiki.
En það er gott vinnudjamm á morgun. Huggum okkur við það

zondag, juli 23, 2006

Frábært

Komnir í undanúrslit í bikarnum! Höski Bikar-Lineker sá um það. Það er a.m.k. rúmur áratugur síðan það var síðast, þarf að fletta upp.

zaterdag, juli 22, 2006

Guð

Úr viðtali við Eric Cantona í Maxim
Do any current players have your on pitch charisma?
(dead serious) No absolutely not. You're never going to find someone like me again.

Is that because you can't compare 90's football with today?
No its because there's no one like Eric Cantona and there never will be again.

Would you manage Manchester United even with Glazer in charge?
I won't rule out anything but I'm not a fan of the American guy taking over the football institution that is Manchester United.

Do you still go and watch Man U sometimes?
Not since Glazer has taken over

Le Dieu. Nú sem fyrr.
Það er einhver Hollendingur að veifa bless til Norður Lundúna í dag. Lundúnska pressan hefur verið duglega að lofa hann í vikunni. Jafnvel þeir hafa held ég ekki vogað sér að planta 'besti útlendingur sem hefur komið til Englands' í umfjöllunina. Þeir vita að það er hægt.

vrijdag, juli 21, 2006

Gamlir vinir

Fór í gær í jarðarför heiðursmannsins dr Valgarðs Stefánssonar. Dr Valgarður var faðir Lalla æskuvinar míns og fá ef nokkur heimili óvandaðra sem ég hef jafn oft komið á, þó langt sé um liðið síðan síðast. Þarna voru tveir aðrir gamlir vinir úr Landakoti og Hagaskóla og það var gaman, þó tilefnið væri leitt, að ná á mynd okkur fjórum: Mér, Lalla, Sigga Palla og Stebba.

Þó eitthvað séum við eldri en vorum, get ég ekki hugsað mér að setja annað en gömlu gælunöfnin niður, ég er ekkert hættur að vera Bjössi þó eldri sé og sama á við um strákana.
Ég lofaði enn einu sinni bekkjarpartí...

dinsdag, juli 18, 2006

Vinna.

Núna þarf ég að fara í vinnuna, get ekki snúið við á þröskuldinum eins og í gærmorgun. Svaðalega ætlar þetta að vera lengi að rjátlast af manni. Jæja, kannske er það bara allrameinabót að drífa sig niðreftir!

zondag, juli 16, 2006

Plágan

Plágan plagar mig enn. Missti af fertugsafmæli í gær sem ég hefði svo gjarnan viljað fara í, súrt.
Það góða við þetta er samt að það er ömurlegt að vera veikur á sumrin þegar sólin skín og veður er gott. Miklu betra að vera veikur svona síðla haust eins og núna.
Allt að gerast, Ruud að fara, Juve, Roma og Fiorentina niður, ekki Milan þannig að draumar um Gattuso gufa upp. Er Viera? Toni? að koma? Kannske að láni? Slúðurslúðurslúður...

donderdag, juli 13, 2006

Smá skoðun.

BREYTING kl 16:37 : Búið er að breyta síðunni sem vísað er í hér að neðan og er núverandi texti miklum mun betri og síðunni sæmandi. Bent er á að lönd með óstöðugt stjórnarfar eða lélega efnahagsstjórn eru alla jafna með kauphallir sem hafa óvirkar heimasíður.
Ákveð samt að taka ekki færslun að neðan alveg út.
-------
Hver skyldi vera stjórnmálaskoðun þess starfsmanns Vefmiðlunar ehf sem setti þetta inn á fróðleikssíðu nýja viðskiptavefsins þeirra, m5.is:
Athygli vekur þó að lönd sem lent hafa í stjórnarbyltingum sósíalista undanfarið eru í flestum tilvikum með óvirkar heimasíður enda verðbólga í viðkomandi löndum oft yfir 1000% og verðbréfamarkaður hruninn að mestu. Dæmi um slíkt land er Simbabve.
Ekki það að ég efist um að kauphöll Simbabwe sé óstarfhæf, og vissulega er tenglalistinn á m5langur þannig að safnari tenglanna hefur eflaust tekið eftir ýmsu, en ég er ekki viss um að viðskiptavefur eigi að vera pólitískur í eðli sínu. Ég man reyndar ekki eftir mörgum stjórnarbyltingum sósíalista í heiminum undanfarið, endilega fræðið mig um þær. Myndi heldur ekki telja Simbabve gott dæmi um stjórnarbyltingu. En ég sé allavega ekki hvaða máli þetta skiptir þegar talað er um erlendar kauphallir, væntanlega ekki ofarlega á áhugalista íslenskra fjárfest.
Ætli skríbentinn eigi jafn erfitt með sig þegar hann/hún fjallar um fyrirtæki hvers stjórnendur eru þeim ekki að skapi?
p.s. eitthvað finnst mér líka skrítið, ef þessi mikla vinna við söfnun tengla á erlendar kauphallir fór fram á Íslandi, að síðustu löndin í stafrófsröðinni eru Venesúela, Júgóslavía, Sambía og Simbabwe...
Vefurinn samt flottur að mörgu leyti.
p.p.s. Ah. Mikið ofboðslega er ég hissa. Eftir nokkuð vafr fann ég mynd af ritsjórn m5. Það skyldi þó ekki vera Friðbjörn Orri Ketilsson sem reit ofangreint?
Ligg annars í bælinu þriðja daginn í röð, er þó að koma til .

maandag, juli 10, 2006

Italia Campioni!

Frábært í gær. Nenni samt ekki að skrifa um það núna. Er nebblega með kvef og hálsbólgu. Mætti kalla þetta fráhvarfseinkenni. Missi þar af leiðandi af Fylkir - Víkingur í kvöld. Ætlaði að segja hvað það væri ömurlegt að horfa á fótbolta á textavarpinu en mundi þá að þetta er beint á sýn. Jei!
Verður fróðlegt að heyra lýsingu. Síðast þótti Gaupa nauðsynlegt í samantektinni um leikinn upp á Skaga að segja að KR-ingurinn Jökull hefði skorað. Ekki fyrrum KR-ingur, nei... Ljóta vitleysan.

zaterdag, juli 08, 2006

Djamm og jæja

Fínt skrall í gær, Austur-Indía fjelagið er alltaf jafn sólíd. Það kom enn á ný í ljós að það að þekkja muninn á hægri og vinstri er ekki mín sterka hlið. Þar er líklega grunninn að pólitískum viðrinishætti mínum.
Morguninn var tekinn aðeins of snemma, en það er bara eins og það er. Þeim mun fyrr verður maður sem nýsleginn túskildingur.
Frændi minn garðyrkjumaðurinn hefur komið í heimsókn, grafið upp runnabeðið góða við enda garðsins og skipt um mold. Work in progress greinilega, hið besta mál! Var ekki alveg að kveðikja þegar ég sá eitthvað grænt drasl á neðri flötinni, hélt að eitthvað af unga fólkinu í þessu ágæta hverfi hefði verið á ferð að rífa upp plöntur, var ekki fyrr en ég kom út að mér varð litið upp á efri flöt og sá allan uppgröftinn þar. Ég hef aldrei fengið fyrstu verðlaun fyrir að taka vel eftir umhverfi mínu!

woensdag, juli 05, 2006

Hlýðni

Skv fyrirmælum yfirmanns míns fer ég í ítölsku treyjunni í vinnuna núna.

dinsdag, juli 04, 2006

Þvílíkur leikur

Stórkostlegt. Frábært. Æðislegt.
Langbesti leikur HM, einn besti knattspyrnuleikur sem ég hef séð lengi.
Og rétt úrslit að auki.

Fratelli d'Italia

Allir saman nú!
Fratelli d'Italia,
l'Italia s'è desta,
dell'elmo di Scipio
s'è cinta la testa.
Dov'è la Vittoria?
Le porga la chioma,
che schiava di Roma
Iddio la creò.

CORO x 2:
Stringiamoci a coorte,
siam pronti alla morte.
Siam pronti alla morte,
l'Italia chiamò.
Stringiamoci a coorte,
siam pronti alla morte.
Siam pronti alla morte,
l'Italia chiamò!

Sì!

maandag, juli 03, 2006

Grill

Nú kann ég að kveikja á grillinu. Þar með aukast líkur á að það verði notað í sumar...

Fríið frá

Þá er þriggja vikna ljúfu fríi lokið og tími kominn að koma sér aftur í vinnuna. Verður fínt bara.

zondag, juli 02, 2006

Bikarsigur

Ojá!
Fórum í Fjörðinn og rassskelltum Gaflarana. 2-1 og Höski með bæði. Svona á að gera það.
Rétt að minnast á ítrekaðan fautaskap Tryggva Guðmundssonar sem tvisvar sparkaði niður leikmenn sem komust framhjá honum án þess að fá gult. Hlýtur að vera á sér díl hjá dómurunum!

Mér finnst rigningin góð

Ekki oft sem maður fagnar rigningu, en núna var þetta fínt. Enda lítur flötin svona út:

Leigði sumsé mosatætara í gær, sáði í flötina og bar á. Sé að ég þarf að bera kalk í þetta líka, tek það um næstu helgi. Þarf reyndar að vera duglegur í bæði áburði og kalki. Reyna gera þetta aðeins meira næs.
Eftir vonbrigði í 2.umferðinni, liðin sem ég hélt með unnu 2 leiki af átta, var þetta mun betra núna, allir leikirnir í fjórðungsúrslitum fóru eins og ég vildi. Liggur samt við að ég vorkenni Einari Erni. Svona er boltinn.

zaterdag, juli 01, 2006

Boston Legal

Alltaf gaman þegar fólk fær hugmyndir úr sjónvarpsþáttum.