Bjarnarhýðið

Bjarnarblogg

A bear by name, not by nature

Víkingur 100 ára

zondag, maart 25, 2007

Helgarblogg

Föstudagurinn var afskaplega góður. Fór eftir vinnu með afmælisgjafir handa frænda, og verð að segja að Víkingstreyjan fer honum vel. Svo var pabbinn ánægður með Arsenal treyjuna, það sem maður gerir ekki fyrir vini sína!
Hafði verið að spá í líta í fimmtugsafmæli matargúrúsins en var svo boðið í mat til vina minna. Big chunks o'meat af grillinu klikkuðu ekki. Síðan var tími á að halda niður í bæ með viðkomu í Fossvoginum að ná í frænda. Síðan var það Apótekið þar sem m.a. var rætt um Hvolsvöll. En lokaáfangastaður var Sálarballið á Nasa og þar var tjúttað fram eftir nóttu. Hápunktur kvöldsins var auðvitað að sjá uppáhaldstrommarann minn performa. Nei, ekki Jóhann...
Miðað við allt var gærdagurinn bara fínn og rólegur, göngutúrinn niður í getraunakaffið í Víkinni í grenjandi slagviðrinu var hressandi.
En núna þarf ég að klára skattinn og svo er tveggja ára afmælisveisla.

Labels: