Bjarnarhýðið

Bjarnarblogg

A bear by name, not by nature

Víkingur 100 ára

vrijdag, oktober 12, 2007

Þögnin var æpandi

Já, mikið rétt, Shift-3 hittir naglann á höfuðið.
Ég horfði á seinni undanúrslitaleik laugardagsins síðasta síðla nætur eða á sunnudagsmorgni, nýkominn úr bænum eftir indælan kvöldverð hjá Hildigunni og Jóni Lárusi og frekari næturgöltri eftir það og var því ekki mjög vel vakandi. Ég gat engu að síður ekki afskrifað tap minna manna sem slæman draum, en var alls ekki í standi til að fjalla um málið daginn eftir.
Stutta útgáfan er auðvitað sú að Frakkar unnu, að mestu verðskuldað þó að dómarinn hafi reyndar sent mann útaf (10 mín. brottvísun) að ósekju og síðan misst af sóknarbroti þegar Frakkar skoruðu seinna snertimark sitt. Langa útgáfan er í nýsjálensku blöðunum alla þessa viku, en besta lýsingin er sú að Alsvartir hafi hreinlega ekki mætt til leiks. Enn einu sinni lofa þeir meiru fyrir keppnina með leik sínum en staðið er við þegar á hólminn er komið.
Það er því ekki að ósekju að síðasti laugardagur sé kallaður óvæntasti dagur í sögu íþróttarinnar!
Sunnudagurinn var eftir bókinni, og þó. Fiji stóð glæsilega í Suður-Afríku þó að mörk undir lokin hafi gert að verkum að úrslitin sýndu öruggan sigur Springboks. Argentína - Skotland var spennandi en Argentínumenn höfðu það.
Á morgun mætast því Englendingar og Frakkar og á sunnudag Argentína og Suður-Afríka. Ég ætla að spá óvæntum úrslitum áfram og horfa annan laugardag á úrslitaleik Englendinga og Argentínumanna.

Labels: ,