Bjarnarhýðið

Bjarnarblogg

A bear by name, not by nature

Víkingur 100 ára

woensdag, februari 20, 2008

Takk Souness

Ef maður hefur í gegnum tíðina ekki þakkað Graeme Souness nógsamlega fyrir að hafa klárað verkið sem Dalglish byrjaði á og rústað Liverpool liðinu, þá var að bætast enn ein ástæðan til að dá manninn. Honum bauðst að taka til Liverpool leikmann sem hafði átt í vandræðum heima fyrir og vildi byrja nýtt fótboltalíf í Englandi. Hann sagði Neitakk.
Eins gott.
Ég er nefnilega nokkuð viss um að ólíkt aulunum í Leeds hefði Liverpool ekki selt okkur Eric Cantona.

Versti stjóri sem ráðinn hefur verið oftar en einu sinni í efstu deild í Englandi. Staðreynd.

Labels: ,

dinsdag, februari 12, 2008

Banjó

Fyrir nokkrum árum setti ég hér inn link á mp3 af Carmina Burana á banjó. Veit að hljóðskráin er löngu farin, en ég fann þetta á youtube:
Adblock

Ástæðan fyrir að ég leitaði og fann, var sú að ég sá þetta hér hlekkjað af Making light:
Adblock

og varð að sjálfsögðu hugsað til þessa gamla pósts míns.
Í öðrum fréttum er helst að ég er að skrópa, ætti að vera á Víking - Val í handboltanum og að ég er rétt að ná mér af augnígerð og sári á hornhimnu. Oj. Ekki treysta heimilislækni til að leita að eða finna hið síðarnefnda, best að leita beint til sérfræðings.

Labels: , ,

woensdag, februari 06, 2008

50 árum síðar minnumst við þeirra enn

They shall not grow old as we that are left grow old
Age shall not weary them, nor the years condemn
At the going down of the sun, and in the morning
We will remember them
Geoff Bent. Roger Byrne. Eddie Colman. Duncan Edwards.
Mark Jones. David Pegg. Tommy Taylor. Liam Whelan.

The Flowers of Manchester:


Minningarsíða MUST
Minningarsíða opinberu heimasíðunnar
Minningarathöfn á Old Trafford er í dag frá 14:30, beint á MUTV, sem er óruglað í dag, bæði fyrir þá sem hafa Sky og líka hér á netinu. Dagskrá dagsins á MUTV er hér.

Labels: ,