Bjarnarhýðið

Bjarnarblogg

A bear by name, not by nature

Víkingur 100 ára

zondag, november 26, 2006

Hnjask

Ef ekki fyrir þetta væri ég mun aumingjalegri en ella núna. Núna get ég þó allavega andað grunnt án verkja og setið uppréttur án mikið meira en eymsla, þannig að samanburðurinn við síðasta ár gerir þetta allt mjög bærilegt. Ég rann nefnilega svo snyrtilega á ís í gærkvöld hér fyrir utan og skall á síðuna. Rifin væntanlega vel marin, og kannske brákuð. Who cares... Verst að það er ekkert þægilegt að liggja, þannig að ég verð líklega ekki í bælinu í allan dag, eins og væri freistandi, svona til að ná úr mér kvefinu.
Laufabrauð í gær annars, hef líklega áður minnst á prófessjonalismann í því, byrjað að skera kl 10 og steiking búin um sex leytið. Líklega hátt í 200 kökur. Tók að mér að fylgjast með og aðeins að prófa steikinguna, enda þarf að fara að huga að verkaskiptingu milli kynslóða. Ég held að sjaldan hafi verið skornar jafn flottar kökur. Yngri unglingarnir eru að byrja að koma inn í þann pakka, gott að sjá. Vantaði að mestu eldri unglingana, þannig ég þori ekki að dæma þau. Ég bara fletti, er fyrir löngu búinn að gefast upp á að vona að einhvern tímann verði almennilega kaka úr mínu krafsi.

donderdag, november 09, 2006

Asni.

Ég er víst asni. Það verður víst að hafa það.
Ekki alveg ótengt, eins og segir í heimsbókmenntunum ""Charming man ... I wish I had a daughter so I could forbid her to marry one ..."

woensdag, november 08, 2006

Win some, lose some

Það er bara staðreynd að United er bara ekki með betri mannskap en svo að ef 1-3 af bestu miðju og sóknarmönnunum eru ekki með, þá er þetta erfitt. Og það er eiginlega gott að vita að neðri deildar lið getur unnið stórlið. *hóst* Markmaðurinn átti stórleik og ég held að United hafi átti 15-20 skot á mark á móti þrem Southend. Frekar þarna en í deildinni segi ég bara, en þessir leikir í miðri viku mega alveg fara að fara betur
Á hinn bóginn er sigur í BNA þar sem hægri flokkurinn vinnur öfgahægriflokkinn. Góðar fréttir þar. Þegar þetta er skrifað er meira að segja séns á að Demmar taki öldungadeildina líka. Það væri fagurt.
Vikan næstum hálfnuð, hún mun enda vel, mjög vel.

zaterdag, november 04, 2006

Vikjaenni

Gott eftirmiddagsboð hjá Doktor Gunna... nei, það er víst búið að taka það frá fyrir fullt og allt, þannig að við skuldum kall'ann GunnarPhD. Fullt hús af samstúdentum mínum.
Nú á eftir er haldið á starfsdag KB banka, sem er ekki lengur heilsdagsdagskrá, blessunarlega, held ég. Hvar svo sem kvölddagskráin fer svo fram má bóka fjör.

donderdag, november 02, 2006

Álag?

Það er skammt stórra högga á milli þessa dagana, eftir gott partý á laugardaginn var sameiningarpartý í nýrri deild í gær. Snæddum góðan kvöldverð á Vegamótum og fengum aðeins meððí. Ég reyndar hætti leik frekar snemma, um hálftólf, en aðrir voru duglegri. Á morgun verður svo nýbakaður doktor heimsóttur og á laugardaginn er starfsdagur bankans, þannig að það er nóg eftir.
Í kvöld verður hins vegar legið í leti og safnað kröftum.