Bjarnarhýðið

Bjarnarblogg

A bear by name, not by nature

Víkingur 100 ára

donderdag, mei 31, 2007

Anderson og Nani

United er víst búið að komast að samkomulagi um að kaupa Anderson frá FC Porto og Nani frá Sporting Lissabon.. Nú veit ég jafnlítið um þessa pilta óg þið, en þetta er syrpa með Anderson. Hann er nítján...

Svolítið snöggur, drengurinn.
Og hér er svo Nani. Hann má alveg taka nokkur heljarstökk á Old Trafford næsta síson.

Vonum þetta gangi allt upp. Eitthvað segir mér að Queiros hafi þó nokkur áhrif á OT þessa dagana! og líka aðdráttarafl, eins og annar Portúgali á staðnum.
PS. Hæ, KR-ingar!

Labels:

dinsdag, mei 22, 2007

Weetabix FC

"When I was in the leverage buy-out business we bought Weetabix and we leveraged it up to make our return. You could say anyone who was eating Weetabix was paying for our purchase of Weetabix. It was just business. It is the same for Liverpool. Revenues come in from whatever source and go out to whatever source and, if there is money left over, it is profit."

Sjá neðst í þessari grein.
Knattspyrnulið eru bara eins og hver önnur fabrikka. Annars er ágætt að líkja Liverpool við Weetabix. Það síðarnefnda er álíka bragðgott og hið fyrrnefnda er skemmtilegt á að líta, þannig að maður snertir á hvorugu.
Hm. kannske á líkingin enn betur við Chelsea, Weetabix nær þó allavega árangri! Sleppum því samt, hér eftir vita lesendur viða hvað átt er þegar Weetabix FC ber á góma.
Annars veit ég ekki hvort er verra. Að gleyma ekki obskúr persónu úr Tinna og spyrja um hana, eða að hafa ekki hugsað um þá sömu persónu í 25 ár, en muna eftir henni þegar nafnið kemur upp. Reyndar var nafnið mjög augljóslega úr íslenskri Tinnaþýðingu sem kom mér á sporið, en það tók mig mínútu að kveikja. Mín afsökun? Leyndardómurinn var önnur af tveimur Tinnabókum sem ég átti. Hinar las ég bara á safninu meðan ég var að bíða eftir að bækurnar sem ég var að fá lánaðar voru stimplaðar út.

Labels: , ,

maandag, mei 21, 2007

Arkibaldur Argvís

Var ekki Arkibaldur Argvís veskjasafnari nokkur sem Georges Remi skrifaði um í sögu sinni um Leyndardóm einhyrningsins?
Georges betur þekktur sem Hergé myndi fagna 100 ára afmæli í dag, ef hann hefði lifað.

Labels:

zaterdag, mei 19, 2007

Sena og tónlist.is, helvítis pakk. Og svo eitthvað annað skemmtilegra.

Gleði mín í síðustu færslu var ótímabær. Bent var á í athugasemd að það er Senu að þakka að iTMS er ekki á Íslandi, þar sem Sena neitar að leyfa iTMS að selja þeirra tónlist og iTMS kemur ekki inn á markaði nema geta selt lókal mússík. Sena er hluti af 365 sem og d3, og þetta er því allt sama pakkið. Ég kaupi því ekki minnsta snitti af tonlist.is, því það er þeim að kenna að ég get ekki keypt erlenda tónlist. Rakkarapakk.
En að skemmtilegri hlutum. Bikarúrslitaleikur í dag og við getum hirt okkar fjórðu tvennu (þrennan er talin með). Það yrði yndislegt.
Skemmtum okkur því við að rifja upp næstbesta leikmann sem hefur klæðst rauðu skyrtunni:
.
Svo var ég búinn að lofa að svara henni Freyju:

1. Ferðu eitthvert í sumar?

2. Hvert ferð þú í sumar?
Grikklands (og helgarferð til London reyndar líka
3. Hvað verðurðu lengi?
Tvær vikur
4. hefurðu farið þangað áður?
Já, til Grikklands, en ekki til eyjunnar Εύβοια þar sem ég verð núna.

Labels: , ,

dinsdag, mei 15, 2007

tonlist.is! Frábært!ekki frábært.

Þar til nú hefur þessi færsla verið í fullu gildi (reyndar fóru víst gæðin á einhverjum punkti upp í 192kbps).
En ekki lengur! Skv Mogga í morgun ætlar tonlist.is að taka DRM af skrám sínum!. Þetta eru frábærar fréttir! Nú er hægt að kaupa af þeim lög og *eiga* þau, ekki bara fá þau lánuð með skilyrðum. iPod eigandinn og iTunes eigandinn ég get loksins farið að nota þetta. Skv fréttinni fer þetta í loftið á laugardag, ég mun mæta og kaupa góðan slurk!
Sé að þeir munu bjóða upp á mismunandi form, t.d. bæði aac og mp3. Fróðlegt væri ef maður gæti fengið lag á báðum formum, svona ef maður treystir ekki að maður muni alltaf nota iPod, eða vill geta spilað í ekki-iPod tónhlöðum eða iPod lausum tölvum. Kemur í ljós.
Geri ráð fyrir að þetta verði vatnsmerkt á einhvern hátt þannig að ekki verður áhættulaust að dreifa keyptum lögum áfram, en, það er nú einu sinni ólöglegt ;)
edit: Sem sé frábært!. Ekki frábært. tónlist.is sökkar enn! Sjá hér

Labels: ,

zaterdag, mei 12, 2007

Evróvision.. ha?

Ha?
Jújú, úkraína var allt í lagi, en ég var að fíla Svía, Finna og Frakka. Í þessari röð. Maður getur víst ekki kosið sigurvegara á hverju ári.

Labels:

Á leið á kjörstað

Er á leið á kjörstað og var rétt í þessu að ákveða mig. Það er ágætt. Held ég. Aldrei verið svona óviss um mitt atkvæði, þetta er allt saman pakk.
Plana svo að renna í bæinn og gera eitthvað skemmtilegt.

Labels:

dinsdag, mei 08, 2007

Kosningar og Heródes who?

Tók prófið sem allir eru að tala um:
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 30%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 30%
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 25%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 24%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 6.25%

Þabbara þa...
Tók það svo aftur, í þetta skipti herti ég aðeins á skoðunum mínum og varð ákveðnari:
Stuðningur við Samfylkinguna: 62.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 40%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 31.25%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 28%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 12.5%

Þetta getur ekki verið skýrara, eða hvað?? Gleymdu reyndar að spyrja hvort maður treysti liðinu! Þetta er samt skárra en síðast og eitthvað meira afgerandi.
Svo eru þeir búnir að finna gröf eins Heródesanna, Heródesar mikla meira að segja. Og trúarnöttararnir á Moggablogginu míga í sig af hrifningu af þessari staðfestingu á hve Biblían er sönn. Þarf eitthvað að fara náið út í hvað þetta er fjarstæðukennt? Vantrú reynir samt, svona fyrir þá sem ekki hafa nema hálfa hugsun. Svona eins og E***** A******.
Var boðið á krikketæfingu í gær. Þáði með þökkum en svo komst ég ekki á endum. Svolítið súrt.

Labels: ,

zondag, mei 06, 2007

Meistarar!!

Championes!
Championes!
Olé Olé Olé!

We've Got Our Trophy Back!

Mourinho, are ya listening?
You better have our trophy glistening.
We'll come Wednesday,
To take it away.
We're walking in a Fergie wonderland!

Sama þótt leikurinn á miðvikudaginn skipti ekki lengur máli, þá verður óendanlega sætt að sjá Chelsea þurfa að mynda heiðursgöng fyrir okkur. Ég man hvað það var óendanlega sárt fyrir tveim árum. Fagnaðurinn verður tekinn á miðvikudag, með trukki og dýfu.

Labels:

woensdag, mei 02, 2007

Tap

Það er ömurlegt að tapa ef liðið á það ekki skilið.
Það er enn ömurlegra að tapa ef það er útaf því að liðið gat ekki neitt.
Forza Milan 23 maggio.

Labels:

dinsdag, mei 01, 2007

Evrópa

Chelsea vinnur ekki fjórfalt, það er ágætt.
Verst hvað margir Íslendingar fara af stað á morgun að redda miðum. Ég þarf að bíða fram á fimmtudag, ætla ekki að jinxa neitt með fyrir fram ráðagerðum

Labels: